Linda Björk komin aftur í varðhald

Linda Björk Magnúsdóttir.
Linda Björk Magnúsdóttir.

Lögreglan í Plattsburgh í New York ríki staðfestir nú við mbl.is að bandaríska alríkislögreglan hafi haft upp á Lindu Björk Magnúsdóttur, íslensku konunni sem mikil leit var gerð að í gær og í nótt. Hún er nú í varðhaldi hjá alríkislögreglunni.

Talsmaður lögreglunnar í Plattsburgh vildi ekki orða það þannig að Linda Björk hefði verið handtekin, heldur sagði að komist hefði verið að staðsetningu hennar, en aðspurð játaði hún því að hún væri nú í varðhaldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert