Rjúpnaskytta fótbrotnaði

Myndin tengist ekki umræddu atviki.
Myndin tengist ekki umræddu atviki. mbl.is

Rjúpnaskytta fótbrotnaði á Kerlingarhálsi í Sæmundarhlíð í Skagafirði í morgun. Að sögn lögreglu voru fjórir veiðifélagar að ganga til veiða þegar einn þeirra rann á svelli rétt hjá bílnum og fótbrotnaði. Félagar hins slasaða útbjuggu spelku á brotna fótinn og fluttu manninn í veg fyrir sjúkrabíl.

Maðurinn, sem er á miðjum aldri, var fluttur á sjúkrahús á Akureyri þar sem gert var að meiðslum hans. Lögreglunni á Sauðárkróki var tilkynnt um atvikið klukkan 9:35 í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert