180.000 fm fyrir gagnaver

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Isaac Kato hjá Verne Holdings …
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Isaac Kato hjá Verne Holdings undirrita samning um skipulag svæðis undir gagnaver að Ásbrú í Reykjanesbæ. Reykjanesbær

Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Isaac Kato frá Verne Holdings, hafa undirritað samning um skipulag 180 þúsund fermetra svæðis undir gagnaver að Ásbrú í Reykjanesbæ.

Samningurinn tryggir Reykjanesbæ 17 milljóna króna árlegar tekjur af
fasteignagjöldum núverandi bygginga á umræddu svæði  en um þreföldun við fyrirhugaða stækkun bygginga, samkvæmt frétt frá Reykjanesbæ.

Gagnaverið hefur fengið um 180 þúsund fermetra svæði til umráða að Ásbrú. Verne Holding mun sjá um frágang gatna innan umrædds svæðis.

„Samningurinn við Reykjanesbæ er báðum aðilum hagstæður,“ er haft eftir Jeff Monroe, forstjóra Verne Holdings, í fréttinni. „Staðsetning gagnaversins að Ásbrú er einstaklega  hentug fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Við erum þakklát fyrir stöðugan áhuga og gott viðbragð af hálfu Reykjanesbæjar og hlökkum til áframhaldandi árangurs”.

Haft er eftir Árna Sigfússyni að þeir hafi „mjög jákvæðar væntingar til þessa verkefnis”. “Enn er beðið lokafrágangs fjármálaráðuneytis við
fyrsta fyrirtækið sem hyggst nýta sér aðstöðu Verne Holding og gerast
frumherji á sviði rafrænnar gagnavörslu á Íslandi. Umheimurinn fylgist því vel með,“ er haft eftir Árna.

Árni kveðst vilja þakka Invest in Iceland skrifstofunni og Kadeco fyrir faglega nálgun á kynningu málsins í upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert