Atvinnuleysi mælist 7,6%

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í nóvember 2009 aukist og verði …
Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í nóvember 2009 aukist og verði á bilinu 7,6%-8,1%. Í fyrra var atvinnuleysið 3,3% í nóvember. Reuters

Skráð atvinnuleysi í október 2009 var 7,6% eða að meðaltali 12.682 manns og eykst atvinnuleysi um 4,4% að meðaltali frá september eða um 537 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,9%, eða 3.106 manns.

Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 12,4% en minnst á Norðurlandi vestra 2,2%. Atvinnuleysi eykst um 5% meðal karla en um 3,6% meðal kvenna. Atvinnuleysið er 8% meðal karla og 7% meðal kvenna.

51% hefur verið í meira en 6 mánuði á skrá

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.352 og minnkar úr 7.397 í lok september og er um 51% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár voru 1.700 í lok október en 1.024 í lok september.

Horfur á vinnumarkaði í nóvember

Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá október til nóvember. Þróun síðustu vikna bendir til að svo verði einnig raunin í ár, en erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í nóvember 2009 aukist og verði á bilinu 7,6%-8,1%. Í fyrra var atvinnuleysið 3,3% í nóvember.

18% atvinnulausra eru á aldrinum 16-24 ára

Atvinnulausir 16‐24 ára voru 2.538 í lok október eða um 18% allra atvinnulausra í október. Þeim hefur fjölgað nokkuð frá lokum september þegar þeir voru 2.435.

Alls voru 264 laus störf hjá vinnumiðlunum í lok október sem er fækkun um 178 frá því í mánuðinum áður þegar þau voru 442.

Alls voru 1.764 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok október, þar af 1.128 Pólverjar eða um 64% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok október. Langflestir erlendra ríkisborgara voru starfandi í byggingariðnaði eða 647 (um 37% allra erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá).

Samtals voru 2.514 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok október í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í október. Þetta eru um 17% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok október.

Flestir sem fá greitt úr Ábyrgðarsjóði launa störfuðu við útgáfu og þjónustu

Af þeim 2.514 sem voru í hlutastörfum í lok október voru 1.577 einstaklingar sem sóttu um atvinnuleysisbætur skv. lögum um minnkað starfshlutfall frá því í nóvember 2008. Í október voru 821 sjálfstætt starfandi skráðir á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri skv. áður nefndum lögum. Þeim fjölgaði frá september þegar þeir voru 808.


Alls fengu 214 launamenn greitt úr Ábyrgðarsjóði launa í október, 111 í september, 124 í ágúst og 129 í júlí. Flestir voru starfandi í þjónustu og útgáfustarfsemi, 114.

Sjá skýrslu Vinnumálastofnunar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert