Mótmæla sölu rafdreifikerfis

Húsavík er stærsti þéttbýliskjarninn í Norðurþingi.
Húsavík er stærsti þéttbýliskjarninn í Norðurþingi. www.mats.is

Félagsfundur í Norðurþingsdeild Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs,
haldinn á Húsavík þann 11. nóvember 2009, mótmælir því harðlega að
rafdreifikerfi Orkuveitu Húsavíkur ehf. verði selt til RARIK ohf. og
Orkusölunnar ehf., að því er segir í tilkynningu frá deildinni.

„Fundurinn skorar á stjórn Orkuveitunnar að fella þennan samning sem ekki er gerður með vitund eigenda, það er íbúa Norðurþings. Jafnframt skorum við á kjörna fulltrúa í sveitarstjórn Norðurþings að koma í veg fyrir að þetta verði að veruleika.

Þessi gjörningur hefur ekki fengið lýðræðislega umræðu, hvorki í samfélaginu né meðal kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn. Engin rök
hafa komið fram sem styðja þessa ákvörðun.

Þegar Orkuveitunni var breytt í eignarhaldsfélag sögðu allir
sveitarstjórnarfulltrúar að alls ekki stæði til að selja Orkuveituna né
hluta hennar. Fundurinn lýsir fullri ábyrgð á hendur meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á þessum gjörningi.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert