10 þúsund búnir að panta áskrift

Um 10 þúsund áskrifendur hafa þegar tryggt sér áskrift af Skjá einum. Frá og með næsta sunnudag verður Skjár einn í læstri dagskrá.

Fyrir um mánuði síðan var tilkynnt að Skjár einn yrði áskriftastöð frá og með 15. nóvember. Nú styttist í að stöðinni verði læst og segir Sigríður Margrét Oddsdóttir áskriftasöluna hafa gengið framar vonum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert