Eina færa leiðin
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi, að eina færa leiðin til að fást við gríðarlegan halla á ríkissjóði væri blönduð leið niðurskurðar ríkisútgjalda og skattahækkana. Steingrímur fjallaði hins vegar ekki um hvaða tillögur ríkisstjórnin gerði um skattahækkanir.
Rætt var um skattamál utan dagskrár á Alþingi í dag að ósk Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks. Bjarni sagði, að þrátt fyrir öll áföll hefðu skatttekjur ríkisins haldið í við verðlag frá árinu 2003. Verkefnið nú væri að koma skattstofnunum aftur í lag svo þeir fari að skila ríkinu tekjum. Áform ríkisstjórnarinnar væru hins vegar fullkomlega óljós en ríkisstjórnin hefði helst tjáð sig um skattaáform sín á tröppum Stjórnarráðsins en ekki í þinginu.
Bjarni sagði, að breyting á skattprósentu væri eitt en aðrar álögur, sem lentu á fólkinu í landinu, væri annað. Reiknað hafi verið út, að fólk með um 300 þúsund á mánuði muni fá skattalækkun um 1000 krónur á mánuði. Sú skattalækkun muni hverfa næst þegar þeir dæla bensíni á bílinn sinn.
„Þessi ríkisstjórn hefur þá skyldu að hlífa almenningi í landinu, hún verður að byggja upp bjartsýni og trú. Það gerir leið Sjálfstæðisflokksins," sagði Bjarni og vísaði til tillagna sjálfsstæðismanna um að ríkið taki til sín frestaðar skatttekjur í lífeyrissjóðakerfinu. Sagði Bjarni að með því móti væri hægt að loka fjárlagagatinu.
Steingrímur sagði, að vissulega væri hægt að taka risastór lán hjá kynslóðum framtíðarinnar í gegnum lífeyrissjóðakerfið. Það væri leið Sjálfstæðisflokksins, sem væri ekki ábyrg. Sagði Steingrímur að það hefði verið dökkt yfir Bjarna því hann kæmist að þeirir niðurstöðu, að það hefði ekkert uppá sig að reyna að hlífa tekjulægsta fólkinu við skattahækkunum vegna þess að það færi beint út á bensínsölu, kannski í N1, og keypti þar bensín.
„Eigum við þá ekki að reyna þetta og gefast upp?" spurði Steingrímur. Hann sagði, að tapið í Seðlabankanum hefði verið 300 milljarðar króna og uppsafnaður halli á ríkissjóði á árunum 2008 til 2010 stefni í 500 milljarða króna. „Þetta tekur dáldið í og kostar sitt í vaxtagreiðslum árlega að standa undir þessum skuldum. Halli af þessari stærðargráðu gengur ekki upp og það væri algerlega óábyrgt annað en að takast á við það af mikilli einbeitni að ná honum umtalsvert niður. Og þeim mun stærri skref sem við tökum framarlega í ferlinu þeim mun betra."
Bloggað um fréttina
-
Jakob Falur Kristinsson Blönduð leið -
Sigurjón Sveinsson Það sem ekki var talið upp: fjölga störfum -
Ómar Geirsson Steingrímur persónugerir vandann. -
Bjarni Þór Sigurbjörnsson Um meint réttlæti þrepaskipts skattkerfis -
-
Gísli Gíslason Fjölgun starfa = meiri skatttekjur fyrir ríkissjóð. -
Jóhann Elíasson Eina FÆRA leiðin sem HANN þekkir....... -
Velvakandi Jú, það eru fleiri leiðir... -
Þórarinn Þ Gíslason EF AÐ SATT ER AÐ ÞAÐ EIGI AÐ SKATTLEGGJA LÍFEYRISSJÓÐINA ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Fjárlög með 99 milljarða halla
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Hefur almenning ekki með sér
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Stjórnarkreppa í landinu
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Minni umsvif á fyrstu mánuðum
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Innlent Öll heimili greiða hærri skatta
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































