Tveimur Frökkum vísað úr landi

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lögreglan á Suðurnesjum vísaði tveimur Frökkum frá landinu í dag, skv. ákvörðun Útlendingastofnunar. Grunur lék á að mennirnir væru komnir hingað til lands í ólögmætum tilgangi. Í fórum þeirra fannst búnaður sem ætlaður er til að svíkja fé af fólki með beitingu blekkinga og fölsun evruseðla.

Mennirnir komu til landsins frá London 10. nóvember sl.

Tekið er fram að við ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið litið til frávísunarheimilda í ákvæðum 41. gr. útlendingalaga þar sem skírskotað sé til allsherjarreglu og almannaöryggis. 

„Við afskipti lögreglu vaknaði grunur um að þeir væru hingað komnir í ólögmætum tilgangi. Í samvinnu við tollgæslu fannst í fórum mannanna  búnaður sem ætlaður er til að svíkja fé af fólki með beitingu blekkinga og fölsun evruseðla. Sams konar búnaður hefur áður verið tekinn af mönnum sem hingað hafa komið í sama tilgangi. Mennirnir eru franskir ríkisborgarar,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert