Fréttaskýring: Leikskólar lenda í niðurskurði

Leikskólabörn - myndin tengist efni fréttarinnar að öðru leyti ekki stækka

Leikskólabörn - myndin tengist efni fréttarinnar að öðru leyti ekki mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is

Lengra sumarleyfi og færri afleysingaráðningar eru meðal þeirra leiða sem leikskólaráð Reykjavíkurborgar skoðar nú til að mæta kröfum um niðurskurð í leikskólastarfi í borginni. Við gerð fjárhagsáætlunar er hvarvetna gerð rík krafa um sparnað.

Hvað áhrærir leikskólana, sem 6,6 milljörðum króna er varið í árlega, er hagræðingarkrafan 220 milljónir, sem gerir 3,3% af rekstrarkostnaði leikskólanna eða rúm 2% af heildartekjum. Heildarhagræðing á sviðinu er 5,57% eða 580 milljónir. Rekstur um 35% leikskóla borgarinnar hefur verið samkvæmt þessu en vinna fer að hefjast við að ná þessu í heild, segir Ragnar Sær Ragnarsson, formaður leikskólaráðs Reykjavíkur.

Sparað í yfirstjórn

„Við stefnum að því að draga úr yfirstjórn og þjónustu, sem kemur síður við leikskólana. Við erum að skoða lækkun á þjónustutryggingu og öðru sem liggur hjá sviðinu auk hugmynda um að vistun nýrra barna verði að hausti, og að hætta þá með sumarráðningar. Þannig sparast 360 milljónir króna á ári. Þannig ætlum við að ná sparnaðinum fram að mestu leyti,“ segir Ragnar Sær.

„Útgangspunkturinn hjá okkur er sá að fastráðnu starfsfólki verði ekki sagt upp né heldur verði launakjörum þess raskað. Raunar tel ég ekkert í þessum niðurskurðartillögum okkar vera ógn við rekstur leikskólanna. Þeir verða sem fyrr flaggskipið í þjónustu borgarinnar.“

 Háskólafólki fjölgar

Ragnar Sær telur raunar mikilvægt að halda ýmsum jákvæðum punktum í starfsemi skólanna sérstaklega til haga. Leikskólakennurum og starfsfólki með háskólamenntun hefur fjölgað um 10% á milli ára og er það nú 57% alls starfsliðsins. Er það í fyrsta sinn sem fagfólk er fleira en leiðbeinendur og annað starfsfólk. Stöðugleiki í starfsmannahaldi er meiri en nokkru sinni áður.

Þá eru nú 98% stöðugilda á leikskólunum mönnuð en til skamms tíma var hlutfallið um 94%. Þetta skapaði svigrúm til að taka inn alls 250 börn til viðbótar, sem er ígildi þess að þrír nýir leikskólar hafi verið teknir í gagnið nú í haust. Þá eru leikskólagjöld lægri í Reykjavík en annars staðar og systkinaafsláttur veittur.

 Hræðsla meðal foreldra

„Ég hef skynjað talsverða hræðslu og óvissu meðal foreldra vegna fyrirhugaðs niðurskurðar,“ segir Ólöf Kristjánsdóttir, sem fer fyrir grasrótarhópnum Börnin okkar – samtök foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík, auk þess sem hún er áheyrnarfulltrúi í leikskólaráði.

„Foreldrar fá mjög misvísandi svör. Sums staðar stendur til að færa fólk til í starfi og eðlilega bera foreldrar kvíðboga fyrir því að slíkt komi niður á gæðum skólastarfs. Því er mjög nauðsynlegt að við fáum skýrari svör og eitthvað handfast sem hægt er að taka afstöðu til. Sem stendur erum við svolítið í lausu lofti,“ segir Ólöf sem telur mjög til eftirbreytni að nálgast eigi málið og finna bestu leiðirnar í niðurskurði með sameiginlegu starfi og nálgun stjórnmálamanna, starfsfólks leikskólanna og foreldra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands 2015

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland en um verður að ræða stærsta norræna varnarsamstarfið til þessa. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
1 dekk 640/13 til sölu.
Ónotað dekk 640/13 til sölu á 5þúsund kall. uppl.8691204...
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
OPEL CORSA-C
OPEL CORSA-C Verð kr. 470.000, árgerð 2002, 1.199 cc. Akstur 141 þ. km. Bens...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...