Sauðfjárbændur mótmæla niðurskurði til refaveiða

Refur
Refur mynd/Jón Jónsson

Landssamtök sauðfjárbænda mótmæla því harðlega að ríkið hætti að niðurgreiða refaveiðar. Gangi það eftir er hætta á því að sveitarfélög muni ekki lengur standa fyrir skipulögðum refaveiðum. Það hefur í för með sér verulega fjölgun á ref með ófyrirséðum afleiðingum fyrir lífríkið í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir ákvörðun umhverfisráherra alveg taktlausa. „Í mörg ár hefur Búnaðarþing ályktað um refa- og minkaveiðar, þar sem lögð hefur verið áhersla á að ríkið auki það fjármagn sem farið hefur til niðurgreiðslu veiðanna. Áhersla hefur verið lögð á það af hálfu bænda að halda þurfi refastofninum í skefjum vegna þess skaða sem hann veldur á lífríki landsins. Það er með ólíkindum að nú sé tekin ákvörðun um spara það litla fjármagn sem farið hefur í veiðarnar. Skynsamlegra hefði verið að auka þetta fjármagn, sem skilar í raun auknum tekjum í ríkissjóð í gegnum virðisaukaskatt,“ að því er segir í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert