Snýst um lítinn bút í myndskeiðinu

Matt Lucas og David Walliams eru mennirnir á bak við …
Matt Lucas og David Walliams eru mennirnir á bak við gamanþættina Little Britain. Reuters

Bútur sem framleiddur var með stjörnunum úr sjónvarpsþáttunum um Litla Bretland er ástæða þess að Sagafilm óskaði eftir því að Baugs myndskeiðið svokallaði yrði fjarlægt af YouTube.

Þetta segir Kjartan Þór Þórðarson framkvæmdastjóri Sagafilm. Í samningum sem fyrirtækið gerði vegna framleiðslu innslaganna var ákvæði um að bútarnir mættu ekki vera sýndir á netinu. „Við höfum einfaldlega ekki efni á að borga sektir sem kynnu að ljótast af þessu“ segir Kjartan. Baugs myndbandið er úr veislu sem fyrirtækið hélt í Mónakó þar sem fjöldi þekktra andlita bregður fyrir en auk þeirra félaga úr Litla Bretlandi steig Tina Turner á stokk.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert