Ísland stefnir í greiðsluþrot

Þór Saari segir erlenda sérfræðinga sammála honum um að Ísland stefni í greiðsluþrot. stækka

Þór Saari segir erlenda sérfræðinga sammála honum um að Ísland stefni í greiðsluþrot. mbl.is/ÞÖK

„Ég átti fund með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag og þar viðurkenndu þeir að skuldirnar væru hærri en ekki hversu mikið eða hvers vegna,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Þór segir erlenda sérfræðinga að miklu leyti sammála honum um að Ísland stefni í greiðsluþrot.

Þór sat fundinn fyrir hönd Hreyfingarinnar sem var um klukkustundar langur en fulltrúar sjóðsins hittu alla fulltrúa stjórnarandstöðunnar á einkafundum í dag.

Aðspurður hvort hann hafi geta fengið úr því skorið hjá fulltrúum sjóðsins hvort skuldir þjóðarbúsins væru komnar yfir þau 310% sem sjóðurinn áætlaði nýverið kveðst Þór ekki hafa fengið nein svör við því.

„Þetta eru tölur sem að okkur finnst mjög einkennilegar,“ segir Þór. „Þetta eru tölur um skuldaþol í rauninni. Upprunalega var skuldahlutfallið 160% og þá lýstu þeir því yfir að ef þær færu í 240% yrðu skuldirnar ósjálfbærar. Svo fór það upp fyrir það og það var allt í lagi og nú er það komið upp fyrir 310%. Þetta eru einkennilegar mælingar og einkennilegar réttlætingar hjá þeim. Ég verð að viðurkenna það.“

- Af hverju?

„Í fyrsta lagi vegna þess að þeir skipta um skoðun í hvert einasta skipti sem að skuldirnar hækka. Ef skuldirnar færu í 240% átti skuldaþol Íslands að vera orðið ósjálfbært. Nú er það komið upp í 310% og það hringdi engum viðvörunarbjöllum. Þeir sögðu bara að þetta væri allt í lagi. Nú er það komið upp fyrir 310% og það er enn þá allt í lagi.“

Með aðra samsetningu en Seðlabankinn

- Telur þú að ef skuldirnar eru komnar upp fyrir 310% að við ráðum ekki lengur við þær sem þjóðarbú?

„Það er ekki einu sinni vitað hvað er inn í þessum 310%. Ég var að reyna að fá út úr þeim í dag hvað væri þarna að baki. Þeir eru með öðruvísi samsetningu á þessum skuldum en Seðlabankinn. Þeir hafa yfirleitt miðað við brúttóskuldir hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og það er yfirleitt sú tala sem að notuð er en núna segja þeir að það þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því að nettó skuldastaðan sé allt í lagi.

En nettó skuldastaða er aldrei notuð í svona mælingum. Þeir slá í og úr eftir því hvað hentar. Ég er menntaður hagfræðingur og ég hef aldrei séð svona tölur. Þetta er fordæmalaust. Bara skuldir ríkissjóðs eru brjálæðislegar miðað við hlutfall af þjóðarframleiðslu. Afborganir og greiðslur af þeim eru mjög háar.“

Ríkið getur ekki borgað skuldirnar

- Getur ríkið staðið undir þessu?

„Ég held ekki. Ég hef sagt það oft áður. Ég held ekki.“

- Þú vilt sem sagt meina að Ísland stefni í greiðsluþrot?

„Já. Ég vil meina að svo sé. Það varð ljóst fyrir talsvert löngu síðan en menn þráast við. Það stendur í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að skuldir Íslands næstu fimm árin eru ekki sjálfbærar.“

„Fráleit harka“ vegna Icesave

Inntur eftir því hvers vegna hann telji að fulltrúar sjóðsins séu ekki að segja Íslendingum alla söguna bendir Þór á þá kenningu að það sé vegna þrýstings af hálfu Breta og Hollendinga sem að þrýst sé á um að staðið verði við skuldbindingar vegna Icesave.

- Jafnvel þó að fulltrúar Breta og Hollendinga hjá sjóðnum viti að Ísland stefni mögulega í greiðsluþrot?

„Já, jafnvel. Harka Breta og Hollendinga í þessu máli er náttúrulega alveg fráleit. Fulltrúar sjóðsins viðurkenndu það við mig í dag að það væri ekkert athugavert við fyrirvarana við Icesave-samkomulagið sem að samþykktir voru í sumar og að þeir hefðu lagt að Bretum og Hollendingum að samþykkja þá en þeir gerðu það ekki.“

Þór segir aðgerðir stjórnvalda ganga gegn viðreisn efnahagslífsins.

„Það er alltaf verið að róa í sömu átt, áfram fram af bjargbrúninni. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin viðurkenni skuldastöðu landsins og að hún sé ekki sjálfbær og að það þurfi að leita annarra leiða. Þeim rökum er hafnað.“

Þór kveðst hafa í síðustu viku verið á fundi hjá OECD þar sem hann hafi fengið tækifæri til að ræða við erlenda sérfræðinga.

„Þeir komast að svipaðri niðurstöðu og ég.“

- Að Ísland stefni í greiðsluþrot?

„Já, að skuldirnar sé orðnar of miklar til að við stöndum undir þeim. Nema hvað að hér er hægt að beita rúmenskum aðferðum og keyra allt niður í einhvers konar fátækt næstu 20 árin ef að menn vilja. En þá stöndum við frammi fyrir því að við missum fólkið úr landi í staðinn. Það dæmi mun ekki ganga upp heldur.“

Þór Saari.

Þór Saari. mbl.is/Árni Sæberg

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Vel fór á með þeim Ólafi Ragnari og John Micklethwait, ritstjóra Economist, á ráðstefnunni í ...

Forsetinn ræðir við ritstjóra Economist

21:51 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat í dag fyrir svörum hjá John Micklethwait, ritstjóra The Economist, eins áhrifamesta fréttatímarits heims, á ráðstefnu um höfin sem tímaritið efndi til í Singapúr. Meira »
Óveður í Oddsskarði

Farþegarnir fluttir á Eskifjörð

21:11 Búið er að aðstoða og flytja burt alla farþega rútunnar sem valt í Oddsskarði um áttaleytið í kvöld. Í rútunni voru átta starfsmenn álversins á Reyðarfirði á leið heim til sín. Þeir voru fluttir á heilsugæsluna á Eskifirði til aðhlynningar en enginn var alvarlega slasaður. Meira »

Átta manns í rútu sem valt

Oddsskarð.
20:40 Átta manns voru um borð í lítilli rútu sem fór út af veginum í Oddsskarði rétt fyrir klukkan 20 í kvöld. Veginum er nú lokað. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega, en björgunarsveitir eru að flytja fólkið úr skarðinu. Meira »

Lést í bílslysi í Tansaníu

Gunnar Örn Gunnarsson
20:29 Íslenski pilturinn sem lést í bílslysi í Tansaníu síðastliðinn laugardag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann bjó í Helsingborg í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Flutningabíll valt á Fjarðarheiði

Á Fjarðarheiði.
20:37 Stór flutningabíll með eftirvagn, sk. trailer, valt á Fjarðarheiði ofan Seyðisfjarðar í vonskuveðri um sjöleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tveir menn í bílnum og sat annar þeirra fastur. Meira »

Oddsskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddsskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »

Styttist í hrognafrystingu

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi
20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og -frystingu. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna sk. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi hinn 17. febrúar sl. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SUNDBOLUR
Sundbolir - Tankini - Bikini - Náttföt Undirföt. Frú Sigurlaug, Mjóddin, s. 774...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, uppþvottavélar, ...
KEBEK VETRARDEKK
Kebek vetrardekk - Tilboð Hönnuð og prófuð í Kanada. 1...
HLUTASTARF
Glætan, Laugavegi 19, leitar að duglegum og jákvæðum starfskrafti. Við leitum að...
 
Sérfræðingur
Sérfræðistörf
Sérfræðingur Lífeyrissjóður Vestmanna...
Útgáfustjóri
Fjölmiðlun
Útgáfustjóri Námsgagnastofnun óskar e...
Hvítasunnukirkjan fíladelfía
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...