Meirihluti samþykkti Icesave

Fundarsalur Alþingis. stækka

Fundarsalur Alþingis. mbl.is/Kristinn

Meirihluti þingmanna greiddi atkvæði með 1. grein frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna eftir 2. umræðu um málið í dag. Fer frumvarpið nú til meðferðar hjá fjárlaganefnd þingsins en ekki er ljóst hvenær það kemur til 3. og síðustu umræðu á Alþingi.

Alls greiddu 32 þingmenn atkvæði með frumvarpsgreininni, allir viðstaddir þingmenn Samfylkingarinnar og allir þingmenn VG nema tveir, Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson. Þá greiddi Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður, atkvæði með frumvarpsgreininni. 29 þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu atkvæði gegn frumvarpinu auk Lilju og Ögmundar en tveir þingmenn voru fjarverandi.

Þau Lilja, Ögmundur og Ásmundur Einar Daðason sátu síðan hjá þegar atkvæði voru greidd um 2. grein frumvarpsins en Ásmundur Einar sagði, þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu um 1. grein frumvarpsins, að þótt hann féllist á að frumvarpið fari til meðferðar í fjárlaganefnd myndi endanleg afstaða hans til málsins byggjast á niðurstöðunni þar. Hann greiddi síðan, eins og Lilja og Ögmundur, atkvæði gegn 5. og síðustu grein frumvarpsins um að það tæki þegar gildi og var sú frumvarpsgrein var samþykkt með 31 atkvæði gegn 30.

Þungar byrðar en við getum borið þær

Atkvæðagreiðslan tók langan tíma og margir þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Til dæmis sagði Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar hún greiddi atkvæði um 1. grein frumvarpsins, að líkja mætti þessu máli við harmleik. Í 1. þætti hefðu ráðamenn selt vinum sínum bankana fyrir slikk, mönnum sem kunnu ekkert fyrir sér í bankastarfsemi. Í 2. þætti hafi allt leikið í lyndi, í 3. þætti hafi þeir sem kunnu að reka banka ekki lengur viljað lána íslensku bönkunum. Þá hefðu menn fundið upp á Icesave-reikningunum, „þeirri tæru snilld og nörruðu þannig peninga út úr fólki í útlöndum."  Í fjórða þætti verði íslensk þjóð að taka ábyrgð á óreiðumönnum en ella einangrist hún pólitískt og efnahagslega.

„Þetta verða þungar byrðar en við munum geta borið þær," sagði Valgerður.

Framtíðin mun dæma ykkur

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði í atkvæðagreiðslunni, að þetta mál snérist um að Íslendingar undirgangist ábyrgð upp á 750 milljarða króna. Það sé kaldhæðni örlaganna, að fyrsti gjalddagi lánsins yrði árið 2016, sama ár og greiða verði barnalánið svonefnda, sem Alþýðubandalagið tók á sínum tíma þegar það réði fjármálaráðuneytinu og bæri nú 15% vexti. 

Tryggvi sagði ljóst, að stjórnarliðar greiddu atkvæði á tveimur forsendum, annars vegar hollustu við flokk sinn og hins vegar hatri á Sjálfstæðisflokknum.  „Forsendurnar, sem ykkur hafa verið gefnar eru hálfsannleikur og lygi, ábyrgð ykkar er mikil og framtíðin mun dæma ykkur," sagði Tryggvi Þór. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »
Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bambusstólar
Til sölu 2 mjög vandaðir og góðir bambusstólar, Lækkað verð 15000 kr. stk. Uppl...
Óska eftir 3-4 herbergja íbúð á Akureyri
Ung, bráðum fjagra manna fjölskylda óskar eftir 3. - 4. herbergja íbúð á Akureyr...
Stóll á reiðhjól
Til sölu þessi stóll. Hann er nánast ónotaður . Bleikur hjálmur getur fylgt. Ver...
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
 
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...