35 sagt upp hjá fiskverkunarfyrirtæki

Fiskverkunarfyrirtækið Tor ehf. í Hafnarfirði hefur ákveðið að segja upp 35 manns frá og með áramótum. Um er að ræða sérhæft fiskvinnslufólk.

Í tilkynningu segir Aðalsteinn Finsen, forstjóri Tor, að ástæða uppsagnanna sé að frá því á haustmánuðum hafi fyrirtækið ekki getað fengið nægt hráefni á innlendum fiskmörkuðum til vinnslu. Miðað við óbreytt ástand sé því óumflýjanlegt að grípa til endurskipulagningar á starfseminni. Fyrirtækið hefur keypt allt sitt hráefni á innlendum fiskmörkuðum, um 3-4000 tonn á ári.  Fyrirtækið standi hins vegar vel fjárhagslega.

Þá segir Aðalsteinn það vera mikil vonbrigði, að sjávarútvegsráðherra hafi fallið frá þeirri ákvörðun að afnema undanþágu erlendra fiskmarkaða til vigtunar á íslenskum fiski og vigta allan afla hér á landi. Verði þessi ákvörðun ekki endurskoðuð megi búast við að afli fari áfram óunninn úr landi og minna framboð verði á innlendum fiskmörkuðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert