„Baldur staðinn að ósannindum"

Baldur Guðlaugsson
Baldur Guðlaugsson mbl.is

Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara, sagði í málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag, vegna kröfu Baldurs Guðlaugssonar um að rannsókn á hendur honum verði felld niður, að Baldur hefði verið staðinn að ósannindum. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

Í skýrslutöku yfir Jónínu S. Lárusdóttur, ráðuneytisstjóra í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, sem Björn vitnaði til í málflutningi, sagði hún að Baldur hefði setið fund með sér ásamt bankastjórum Landsbankans, Sigurjóni Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, 13. ágúst í fyrra.

Á fundinum lýstu þeir, „í algjörum trúnaði", eins og Björn komst að orði, því yfir að Landsbankinn gæti lent í vandræðum þar sem bankinn gæti ekki orðið við kröfum breska fjármálaeftirlitsins um færslu á Icesave-reikningum Landsbankans yfir í breskt dótturfélag.

Björn sagði síðan: „Þetta sýnir að Baldur sagði ósatt um að hann hefði aldrei átt samskipti við stjórnendur Landsbankans, og þá sýnir þetta einnig að hann bjó yfir upplýsingum um stöðu Landsbankans sem sýndi alvarlega stöðu hans á þessum tíma."

Viðskiptablaðið fjallar í dag ítarlega um málflutning vegna kröfu Baldurs um að rannsókn á hendur honum verði felld niður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert