Minning kvenna heiðruð með götunöfnum

Götuheitið Höfðatún mun brátt heyra sögunni til og gatan fá …
Götuheitið Höfðatún mun brátt heyra sögunni til og gatan fá nafnið Katrínartún. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Á síðasta fundi skipulagsráðs Reykjavíkur var lagt fram bréf byggingarfulltrúa borgarinnar þar sem gerð er tillaga að nýjum götuheitum í Túnahverfi.

Tillagan gerir ráð fyrir að breyta nöfnum á fjórum götum í hverfinu til að minnast þess að árið 1908 voru fjórar konur kjörnar í bæjarstjórn Reykjavíkur, en þær voru fyrstu konurnar sem settust í bæjarstjórnina.

Samkvæmt tillögunni verður nafni Skúlagötu frá Snorrabraut að Höfðatúni  breytt og gatan nefnd Bríetartún; Höfðatún milli Laugavegar og Sæbrautar verður nefnt Katrínartún,  Sætún  milli Borgartúns og Höfðatúns verður nefnt Guðrúnargata og Skúlatún verður að Þórunnartúni.

Sjá nánar um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert