Margir vilja hanna nýtt sjúkrahús

Líkan af nýjum Landspítala
Líkan af nýjum Landspítala mbl.is

Mikill áhugi er hjá íslenskum hönnuðum á forvali vegna samkeppni um hönnun á nýjum Landspítala við Hringbraut. Um 60 hönnuðir, langflestir þeirra íslenskir, hafa nú þegar sótt forvalsgögn á vef Ríkiskaupa.

Auglýsing um forvalið var birt á Þorláksmessu, bæði hér heima og á Evrópska efnahagssvæðinu, en tilkynningu um þátttöku þarf ekki að skila fyrr en eftir rúman mánuð, eða mánudaginn 15. febrúar 2010.

Sjálf hönnunarsamkeppnin á að hefjast 5. mars 2010 með afhendingu gagna en skilafrestur í hönnunarsamkeppninni er 7. júní 2010 og er ráðgert að úrslit verði tilkynnt um mánuði síðar, eða 5. júlí 2010.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert