Óánægja meðal nemenda með baðaðstöðu

Sundhöll Ísafjarðar
Sundhöll Ísafjarðar Af vef Bæjarins besta

Mikil óánægja ríkir meðal nemenda í Grunnskólanum á Ísafirði með baðaðstöðuna í Sundhöll Ísafjarðar. „Bæði nemendur og starfsfólk hafa orðið vör við að vel sést inn í búningsklefann af götunni og sérstaklega þegar glugginn er opinn, sem hann er oft,“ segir Aðalheiður Kristín Aðalsteinsdóttir, nemi í GÍ, í samtali við fréttavef Bæjarins besta.

Hún segir ástandið vera það slæmt að margir nemendur hafi sleppt tímum í sundi vegna þessa. „Ég er nú til dæmis þannig að ég kann ekkert vel við að aðrar stelpur sjái mig þegar ég er nakin og hvað þá að allir á Ísafirði geti séð mig. Það eru fleiri sama sinnis og margir hafa hætt að mæta í sundtíma vegna þessa.“ Hún bætir við að þeir sem sækja enn skólasund komi oftar en ekki oft seint þar sem biðröð myndast við klósettið þar sem allir vilja skipta um föt þar inni bak við luktar dyr.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert