Skorað á kirkjuna að byggja yfir prestinn í Stafholti
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
Sóknarbörn á nærri því öllum heimilum í Stafholtsprestakalli í Borgarfirði hafa skorað á biskup Íslands að huga sem fyrst að uppbyggingu prestssetursins í Stafholti. Það gera þau til að standa við bakið á séra Elínborgu Sturludóttur sem valin var prestur á síðasta ári og reyna að halda í hana.
Þegar Elínborg kom til starfa í Stafholti á síðasta ári kom í ljós að prestsbústaðurinn var óíbúðarhæfur. Varð að leigja fyrir hana íbúð í Borgarnesi, til bráðabirgða. Unnið var að undirbúningi byggingar húss í Stafholti þegar tilkynning barst um að framkvæmdir myndu frestast vegna efnahagsástandsins.
„Þetta var áfall fyrir Elínborgu og fjölskyldu hennar og heyrðist að hún væri farin að sjá eftir því að hafa sótt um þetta brauð. Þá tóku héraðsbúar sig til enda hefur hún áunnið sér traust og virðingu,“ segir Sigurjón M. Valdimarsson, bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal, einn þeirra sem stóðu fyrir undirskriftasöfnuninni.
Skorað er á kirkjuyfirvöld að hraða svo byggingu nýs íbúðarhúss í Stafholti að það verði tilbúið þegar leigutími núverandi bústaðar prestsins rennur út en það er á fyrrihluta næsta árs.
Listar með 178 nöfnum voru afhentir Karli Sigurbjörnssyni biskupi í gær. Sigurjón segir ekki vitað um framhaldið.
Hann getur þess að mikill áhugi hafi verið á þessu málefni. Íbúar á flestum heimilum hafi skrifað undir og einnig börn og nokkrir velunnarar prestakallsins.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. febrúar 2010, Innlent Vilja byggja upp í Stafholti
- Föstudagur, 16. október 2009, Innlent Viljum fá prestinn okkar aftur
- Sunnudagur, 20. júní 2010, Innlent Grafarvogskirkja fagnar 10 ára afmæli
- Fimmtudagur, 4. júní 2009, Innlent Margir vilja Gunnar aftur
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































