Forseti Alþingis á fundinum

Formenn stjórnmálaflokkanna settust á fund í forsætisráðuneytinu undir kvöld.
Formenn stjórnmálaflokkanna settust á fund í forsætisráðuneytinu undir kvöld. mbl.is/Golli

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, og Páll Hreinsson, sem situr í rannsóknarnefnd Alþingis, hittu formenn stjórnmálaflokkanna á fundi í forsætisráðuneytinu í kvöld.

Hvorugt vildi tjá sig við fréttamenn þegar þau komu út af fundinum en rætt hefur verið um hvort ástæða sé til að fresta fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin sem á að halda 6. mars í ljósi óvissu um hvenær skýrsla  rannsóknarnefndarinnar kemur út.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert