Kolkrabbinn Vídalín er ófeiminn

Kolkrabbinn Vídalín er ekki feiminn við að sýna sig, líkt …
Kolkrabbinn Vídalín er ekki feiminn við að sýna sig, líkt og sumir frændur hans. Setur.is

Stærsti lifandi kolkrabbi sem komið hefur á fiskasafnið í Vestmannaeyjum hefur fengið nafnið Vídalín. Það er til heiðurs skipverjum á togaranum Jóni Vídalín sem færðu safninu krabbann stóra. 

Fjórir kolkrabbar bárust safninu í síðustu viku og er Vídalín sá stærsti sem safninu hefur borist til þessa, að sögn Kristjáns Egilssonar fyrrverandi safnstjóra. 

Í frétt frá safninu segir að yfirleitt séu kolkrabbar mjög fælnir og feli sig helst fyrir safngestum. Það á ekki við um Vídalín því hann fann sér ágætan stein til að hvíla á fyrir miðjum tanki. Hinir þrír kolkrabbarnir eru feimnari og fela sig helst í gjótum og bak við steina í búrum sínum.  

Vídalín verður til sýnis í Sæheimum, fiskasafninu við Heiðarveg í Vestmannaeyjum, á sunnudaginn milli kl. 15:00 og 17:00. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert