Alvarleg brot á samkeppnislögum

Lyf og heilsa stækka

Lyf og heilsa Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Samkeppniseftirlitið tekur að Lyf og heilsa hf. (L&h) hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem höfðu það markmið að hindra að nýr keppinautur í lyfsölu á Akranesi næði fótfestu á markaðnum.

Aðgerðirnar voru til þess fallnar að senda skýr skilaboð til annarra aðila um að ekki myndi borga sig að reyna að keppa við L&h. Telur Samkeppniseftirlitið að brotin hafi verið alvarleg og leggur sekt á L&h að fjárhæð 130 milljónir króna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Aðdragandi málsins er að sumarið 2007 hóf nýtt apótek á Akranesi, Apótek Vesturlands (AV), samkeppni við apótek í eigu L&h sem var fyrir á staðnum. Í kjölfarið barst Samkeppniseftirlitinu ábending um að L&h hefðu gripið til aðgerða til að hindra að AV næði að hasla sér völl á Akranesi.

Samkeppniseftirlitið ákvað að taka málið til rannsóknar og framkvæmdi húsleit hjá L&h þann 17. september 2007. Rannsókn málsins hefur verið umfangsmikil og lauk gagnaöflun í nóvember 2009.

Skýr stefna L&h að keppa ekki við Lyfju

„L&h hafa við meðferð málsins hafnað því alfarið að fyrirtækið væri markaðsráðandi. Þurfti Samkeppniseftirlitið því að taka þetta atriði til skoðunar, skilgreina samkeppnismarkaði málsins og meta stöðu fyrirtækja á honum. Hefur ákvörðunin að geyma ítarlega greiningu á markaði fyrir smásölu lyfja, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi.

Á árinu 2006 ógilti Samkeppniseftirlitið samruna systurfélags L&h (DAC ehf.) við Lyfjaver, sem er keppinautur L&h. Í því máli var lagt til grundvallar að L&h og Lyfja væru í sameiginlega markaðsráðandi stöðu á höfuðborgarsvæðinu og að samruninn hefði styrkt hina sameiginlegu markaðsráðandi stöðu.Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ákvörðunina.

Í sameiginlegri markaðsráðandi stöðu felst í aðalatriðum að mögulegt er fyrir viðkomandi fyrirtæki að samhæfa hegðun sína á markaðnum án þess að þurfa að taka tillit til keppinauta eða neytenda. Eru fyrirtækin þannig í stöðu til þess að takmarka samkeppni og hækka verð.

Í ljósi mótmæla L&h þurfti í þessu máli að rannsaka hvort þessi staða væri enn fyrir hendi. Gögn sem aflað var í húsleitinni hjá L&h staðfesta þetta. Þannig er upplýst að það hafi verið skýr stefna L&h að keppa ekki í verði við Lyfju hvorki á lausasölulyfjum né lyfseðilsskyldum lyfjum.

Einn yfirmanna L&h orðaði þetta svo í tölvupósti: „Varðandi verðin í apótekunum almennt þá er L&h ekki í verðsamkeppni við samkeppnisaðilana.“

Sýna gögn að ákvörðun um verð lyfja var stillt þannig af að það væri hærra en verð sömu lyfja hjá Lyfju. Er þetta skýr staðfesting á tilvist sameiginlegrar markaðsráðandi stöðu og skorti á samkeppni milli stóru lyfjakeðjanna," segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Lyf og heilsa nefndu aðgerðirnar „baráttuafslætti“

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að Lyf og heilsa hafi nefnt aðgerðir gegn Apóteki Vesturlands „baráttuafslætti“. Um var að ræða verulega afslætti á mikilvægum lyfjum og voru þeir aðeins í boði á Akranesi. Umfang þessara afslátta var ákveðið með hliðsjón af fjárhagsstöðu AV sem L&h töldu veikburða keppinaut. Var tilgangur þessara aðgerða að hrekja hinn nýja keppinaut út af markaðnum.

Töldu eiganda Apóteks Vesturlands ekki þola við mikið lengur

Framkvæmdastjóri L&h taldi í þessu samhengi í tölvupósti að AV „þolir þetta örugglega ekki lengi.“ Í öðrum tölvupósti framkvæmdastjórans til eigenda L&h sem sendur var 7. júlí 2007 var rætt um fyrirsvarsmann AV og aðgerðir gegn þessum nýja keppinauti og segir þar m.a.:
„Mér finnst hæpið að hann hafi úthald lengi miðað við þessar forsendur
en helst myndi ég vilja sjá lyfseðlafjölda hjá honum fara niður fyrir 30%
þá er þetta örugglega búið. Hann tekur líklega á sig að vera launalaus
eða launalítill einhverntíma en það gengur ekki til lengdar.“

Lyf og heilsa í eigu Wernersbræðra

Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 29. september í fyrra kom fram að félag í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona fékk 896 milljónir króna að láni frá Moderna Finance AB, sem var einnig í þeirra eigu, til að kaupa verslunarkeðjuna Lyf og heilsu út úr viðskiptasamsteypunni Milestone í lok mars í fyrra.

„Því er Lyf og heilsa ekki á meðal þeirra eigna sem Milestone færði undir Moderna Finance AB á sínum tíma og nú er verið að skoða hvort hægt sé að rifta færslu á á grundvelli gjaldþrotalaga. Slík riftun getur átt sér stað í allt að 24 mánuði eftir skrásettan söludag.

Félag bræðranna, sem heitir Aurláki ehf., keypti Lyfja og heilsu-verslanirnar út úr Milestone-samsteypunni fyrir um 3,4 milljarða króna, en um 2,5 milljarðar af kaupverðinu voru greiddir með yfirtöku skulda. Í úttekt Ernst & Young á viðskiptum Milestone við tengda aðila kemur hins vegar fram að 896 milljónir króna hafi verið „viðskiptafærðar og skulu greiðast við fyrstu hentugleika samkvæmt samningi“, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í september 2009.

Þetta þýðir að Moderna lánaði Wernersbræðrunum tæpar 900 milljónir króna til að þeir gætu keypt út Lyf og heilsu og að þeir ættu að greiða skuldina þegar þeir gætu. Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, segir að skuldin hafi verið gerð upp skömmu eftir að til hennar var stofnað.

Hér er hægt að lesa ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í heild

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni.

Hera, Eyfi og Helga spá í Evróvisjón spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
Til sölu Honda Shadow 125cc árg 2007.
Til sölu Honda Shadow 125 cc árg 2007 , ekið aðeins 900 km, lítur út eins og ...
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
Söluvagn / Pulsuvagn til sölu.
Hef til sölu nýlegan söluvagn tilbúinn í rekstur. Fullbúinn til sölu á pulsum og...
 
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...