Dálítil væta sunnan- og vestanlands í dag

Suðaustlæg átt verður á landinu í dag, víða 5-10 m/s, og dálítil væta sunnan- og vestanlands í dag, en þurrt að mestu norðaustantil. Hlýnar í veðri og hiti 3 til 8 stig síðdegis.

Á höfuðborgarsvæðinu verður suðaustlæg átt í dag, 5-8 m/s og lítilsháttar væta. Hiti 3 til 8 stig.

Á morgun, þriðjudag, verður á landinu sunnan 8-15 m/s og víða rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert