Hætta á málssókn frá Deutsche Bank

Fjármögnunarfyrirtæki eru ósátt við hugmyndir um afskriftir gengislána.
Fjármögnunarfyrirtæki eru ósátt við hugmyndir um afskriftir gengislána. mbl.is/Golli

Ríkið gæti átt yfir höfði sér málssókn frá þýska bankanum Deutsche Bank nái hugmyndir félagsmálaráðherra um afskriftir á bílalánum fram að ganga. Þýski bankinn er, samkvæmt því sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, stærsti lánveitandi fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar, sem færi líklega í þrot. 

Stjórnvöld eru sögð meðvituð um þessa hættu, en telja sig geta komið í veg fyrir málssókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert