Kallað eftir breytingum til að auka skýrleika laganna
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, telur sig ekki hafa orðið tvísaga í afstöðu sinni til gjaldeyrislánanna, líkt og sagt var í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld.
Í yfirlýsingu sem Guðjón sendi frá sér segir: „Vegna fréttar í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 13. mars tel ég rétt að undirstrika að í þeirri umsögn eldri samtaka um vaxtalögin sem vísað er til í fréttinni, er kallað eftir breytingum á frumvarpinu til að auka skýrleika laganna. Komið er á daginn að þar hafa eldri samtök haft nokkuð til síns máls. Ljóst er þó að löggjafinn deildi ekki áhyggjum samtakanna af þessu á sínum tíma.Umsögnin er samin árið 2001 í tengslum við þinglega meðferð frumvarps til vaxtalaga. Ekki er hægt að túlka hana svo að í henni felist dómur um það hvort skilmálar einhverra lána fjármálafyrirtækja sem síðar komu til sögunnar séu löglegir eða ólöglegir, enda bera fjármálafyrirtækin sjálf ábyrgð á útfærslu sinna lánasamninga.
Í fyrrgreindri umsögn er m.a. horft til athugasemda við viðkomandi ákvæði í lagafrumvarpinu sjálfu þar sem frumvarpshöfundarnir segja „Allar þessar breytingar vekja upp spurningar um gildissvið og gagnsemi opinberra reglna um verðtryggingu fjárskuldbindinga.“ Óskýrleiki laganna endurspeglast í því nú að hafa með fárra mánaða millibili fallið tveir andstæðir héraðsdómar um lán í erlendri mynt.
Samtök fjármálafyrirtækja telja brýnt að niðurstöður hæstaréttar í þessum málum liggi fyrir sem fyrst og hafa hvatt Alþingi til lögfesta eins skjótt og verða má fyrirliggjandi frumvarp um flýtimeðferð dómsmála á þessu sviði. Ganga verður út frá því að fjármálafyrirtæki sem veitt hafa slík lán hafi talið þau byggja á lögmætum grunni, enda hvílir á þeim rík ábyrgð að fylgja lögum og reglum í sinni starfsemi. Nú er uppi ágreiningur um lögmæti lánanna og brýnt að úr honum verði skorið sem allra fyrst.„
Bloggað um fréttina
-
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir Mjáááááááá -
Haraldur Haraldsson Steingrímur J. er ekki einn um það að vera þreyttur ... -
Theódór Norðkvist Aumur kattarþvottur
Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Innlent Ekki verið að hóta starfsmönnum
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Innlent Ábyrgðin ekki bankafólks
- Laugardagur, 25. september 2010, Innlent Þingmannanefnd situr á fundi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































