„Enginn samningsvilji hinum megin“
Viðsemjendur flugumferðastjóra hafa hafnað tillögu þeirra um lausn á yfirstandandi kjaradeilu. Flugumferðarstjórar lögðu tillöguna fram hjá ríkissáttasemjara um tvöleytið í dag og aflýstu á sama tíma boðuðum verkföllum á morgun, miðvikudaginn 17. mars, og á föstudaginn kemur, 19. mars.
„Við fengum tilboð frá þeim í gær sem var ekki okkur að skapi og lögðum fram tillögu í dag en henni var hafnað fljótlega,“ sagði Ottó Garðar Eiríksson, formaður Félags íslenskra flugumferðastjóra. Boðuðum verkföllum hafi verið aflýst í góðri trú um að unnið yrði með hugmyndirnar sem lagðar voru fram. „En þeir höfnuðu þessu algjörlega. Það hefur greinilega aldrei verið hugmyndin að semja við okkur, heldur hefur bara átt að beita okkur lögum.“
Ekki liggi fyrir hvað gerist næst, eða hvort frekari verkföll verði boðuð. Trúnaðarmannaráð hafi komið saman en ekki verði boðað strax til fundar með félagsmönnum. Flugumferðastjórar eru þó vissulega ósáttir með stöðu mála.„Það virðist bara vera stefnan nú að láta lög ganga yfir verkalýðinn.“
Deilan er þó enn hjá sáttasemjara, en Ottó segir ekki vitað hvort hann sjái tilefni til að boða fund á næstunni. „Það verður bara að koma í ljós. Við bíðum og sjáum, en það er greinilega enginn samningsvilji hinum megin.“
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. mars 2010, Innlent Aflýsa boðuðum verkföllum
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Lög leysa engan vanda
- Föstudagur, 12. mars 2010, Innlent Fundur boðaður klukkan 13:30
- Mánudagur, 3. janúar 2011, Innlent Flugumferðarstjórar til sáttasemjara
- Sunnudagur, 14. mars 2010, Innlent Enginn fundur boðaður
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































