Ferðamenn hugi að eigin öryggi

Fólk er hvatt til þess að hlýða fyrirmælum lögreglu í …
Fólk er hvatt til þess að hlýða fyrirmælum lögreglu í nágrenni eldgossins á Fimmvörðuhálsi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur almenning til að huga að eigin öryggi og fara með gát ef það ætlar að skoða eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Búast má við að margir fari að skoða gosið um helgina, sérstaklega þar sem veðurspá er þokkaleg miðað við veður síðustu daga.

Í tilkynningu frá félaginu segir að mikilvægt sé að lokanir á svæðum séu virtar en ekki er heimilt að fara í Þórsmörk, á Fimmvörðuháls eða á Eyjafjallajökul. Einnig er ekki leyfilegt að fara nær gosstöðvunum en 5 km sem er skilgreint sem hættusvæði.
 
Mikilvægt er að þeir sem hyggjast skoða gosstöðvarnar hafi eftirfarandi í huga:
 
·        Skoða veðurspá
·        Kynna sér vel það svæði sem fara á um
·        Gera ferðaáætlun og láta aðstandendur vita um hana
·        Vera vel útbúin, m.a. hvað varðar klæðnað og skófatnað
·        Hafa nesti meðferðis
·        Vera viss um að það farartæki sem nota á henti í ferðina og sé í góðu ásigkomulagi
·        Hafa í huga að vegslóðar á svæðinu eru afar viðkvæmir á þessum árstíma
·        Hafa fjarskiptatæki meðferðis og kunna að nota þau
·        Virða lokanir á svæðum og hlýða fyrirmælum lögreglu og björgunarsveita
 
 
Ef farið er á Mýrdalsjökul er mjög mikilvægt að fylgja mjög nákvæmlega hinni hefðbundnu GPS-leið um jökulinn. Óvenjulegar aðstæður eru á jöklum núna þar sem lítið hefur snjóað í vetur og sprungur eru á stöðum þar sem þær hafa ekki verið sýnilegar áður. Reyndar hefur snjóað síðustu daga á jöklinum og hafa á köflum myndast miklir rifskaflar, sumir allt að eins metra djúpir og geta þeir verið mjög varasamir. Jafnframt er harðfenni mikið á hólum og hæðum sem gerir það að verkum að varasamt getur verið að ferðast á ónegldum vélsleðum.
 
Ein af ástæðum þess að svæðið við eldstöðvarnar eru lokað er að vatnsskurðir og pyttir hafa myndast eftir bráðnunarvatn og eru margir undir snjó. Bráðnunargöt hafa komið fram, ís er orðinn ótraustur og gjóska til staðar sem eyðileggur farartæki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert