Ísland kann að skorta stuðning
Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að hugsanlega sé ekki nægur stuðningur innan stjórnar sjóðsins við að efnahagsáætlun Íslands hjá sjóðnum verði endurskoðuð en það er skilyrði fyrir því að Ísland fái frekari lánafyrirgreiðslu.
„Við þurfum meirihluta (í stjórninni). Ef það er enginn meirihluti þá fer engin endurskoðun fram," sagði Strauss-Kahn við fréttaveituna Bloomberg í morgun. „Ef það er meirihluti þá getum við haldið áfram. Ég tel sjálfur að það væri gott að geta haldið málinu áfram nú. En ég veit ekki hvort meirihluti er fyrir því."
Bloomberg segir að Strauss-Kahn hafi látið þessi ummæli falla í viðtali um borð í flugvél frá Varsjá til Búkarest í morgun og vísað til deilna Íslendinga við Breta og Hollendinga um innistæðutryggingar.
„Ég hef alltaf sagt, að Icesave sé ekki skilyrði af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en við þurfum að hafa meirihluta í stjórn sjóðsins," hefur Bloomberg eftir Strauss- Kahn. „Ef Icesave-deilan er leyst er ég viss um að slíkur meirihluti fyrir hendi. Ef Icesave-deilan er ekki fullkomlega leyst veit ég ekki hvort það er meirihluti í stjórninni."
Strauss-Kahn sagðist ætla að ræða við stjórnarmenn sjóðsins og kanna afstöðu þeirra til málsins þegar hann snýr aftur til Washington en hann hefur verið á ferð um austurhluta Evrópu síðustu daga.
Upphaflega stóð til að endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands færi fram í janúar en hún hefur frestast vegna Icesave-deilunnar. Íslensk stjórnvöld hafa farið fram á það við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að endurskoðunin fari fram eins fljótt og unnt er og Mark Flanagan, sem fer með málefni Íslands hjá sjóðnum, sagði í gær að Strauss-Kahn hefði falið starfsfólki sjóðsins að vinna að vinna að því með íslenskum stjórnvöldum að ljúka annarri endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands sem fyrst.
Þeir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, áttu fund með Strauss-Kahn í Washington á föstudag. Eftir fundinn sagði Gylfi við mbl.is að hann væri ágætlega bjartsýnn á að það takist að þoka efnahagsáætluninni áfram.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Helgi Björgvinsson Heimurinn er óvart bara ekki sammála okkur! -
-
Stefán Friðrik Stefánsson Er vinstristjórnin með eitthvað plan B? -
Axel Jóhann Axelsson Kann Strauss-Kahn hvorki að segja satt, eða ljúga sennilega? -
FrizziFretnagli Og spuni lyganna heldur áfram... -
Tryggvi Helgason Bretska ljónið heimtar bráð sína. -
Jón Baldur L'Orange Orð skulu standa -
-
Jón Ingi Cæsarsson Vandamálin gætu enn aukist og atvinnuleysið náð hæðum. -
Þórður Björn Sigurðsson Plan B -
Ómar Geirsson Já, kannski vantar stuðning. -
Guðni Karl Harðarson Fall ríkisstjórnar? -
Geir Ágústsson Hvaða efnahagsáætlun? -
Halldór Halldórsson Svar okkar kostar ekki krónu! -
Jón Valur Jensson Fjárkúgun gegn okkur Íslendingum enn á dagskrá stjórnarmanna í AGS -
Gísli Foster Hjartarson Kjaftæði - Skortir ekki stuðning -
Magnús Óskar Ingvarsson Við borgum það sem okkur ber samkvæmt dómi -
Ragnar S Magnússon lélegt er það -
Rafn Gíslason Burt með AGS og hættum við ESB umsóknina. -
Brjánn Guðjónsson Kettir eru skarpari en Strauss-Kahn -
Tryggvi Þórarinsson Segjum upp samtarfi? "jæja, það er kallað samstarf" við AGS. ... -
Axel Þór Kolbeinsson Skortur á hugmyndum? -
Páll Vilhjálmsson Biðstjórn Jóhönnu Sig.
Innlent »
- Svartir sauðir á hálendinu
- Mæling á PSA ekki áreiðanleg
- Vilja starfshóp um póstverslun
- Icesave hefði sett Ísland á hausinn
- Tíðinda að vænta innan tíu daga
- Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð
- Lagði mat á vegslóða
- Rannsókn nauðgunarmála lokið
- Óljóst um hvað málið snýst
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Ísland uppfyllir skilyrði AGS
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Endurskoðun AGS ljúki sem fyrst
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Nýr tónn hjá Gahr Støre
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Stuðningur alþjóðasamfélagsins nauðsynlegur
- Mánudagur, 2. nóvember 2009, Innlent Vilja fund með Strauss-Kahn
-
Perlan fái hlutverk við hæfi
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku




































