Messaði við Esju

Séra Gunnar Kristjánsson messaði.
Séra Gunnar Kristjánsson messaði. mbl.is Kristinn

Heldur hráslagalegt var í Esjuhlíðum í dag þegar þar fór fram útimessa. Engu að síður kom þar saman hópur fólks og hlýddi á messuna. Prestur var séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum.

Þetta er í fyrst skipti sem efnt er til útimessu við Esju. Fjöldi manns gengur á fjallið um hverja helgi. Ekki voru margir í hlíðum fjallsins í dag, en fjallið á núna í harðri samkeppni við Fimmvörðuháls. Þúsundir manna hafa gengið að gosstöðvunum á hverjum degi að undanförnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert