Hrunið og skýrslan krufin í HÍ

Fyrsti fundurinn er í stofu 132 í Öskju nú í …
Fyrsti fundurinn er í stofu 132 í Öskju nú í hádeginu. Háskóli Íslands

Opnir umræðufundir verða í Háskóla Íslands í þessari viku. Þar á að draga lærdóm af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um hrunið og koma með ábendingar um mikilvæg framtíðarverkefni. Fyrsti fundurinn verður í hádeginu í dag og er yfirskriftin Menning og  samfélag - liggja þar rætur hrunsins? 

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands flytur ávarp í upphafi fundarins í dag. Hulda Þórisdóttir, lektor í stjórnmálafræði, ræðir efnahagshrunið sem afsprengi aðstæðna og fjötraðrar skynsemi.  Þá fjallar Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði um hrunið og hnattvæðinguna og erindi Guðmundar Hálfdánarsonar prófessors í sagnfræði heitir Frjálsasta þjóð í heimi.

Fundurinn í dag er sá fyrsti í runu fimm slíkra sem allir verða í hádeginu í þessari viku. Í hverju hádegi verða flutt  tvö eða þrjú 15 mínútna inngangserindi og í kjölfarið verða umræður og fyrirspurnir til fyrirlesara. Fyrirlestrar verði teknir upp og settir á vef HÍ.  

Málshefjendur koma úr Hagfræðideild, Lagadeild, Sagnfræði- og heimspekideild, Félags- og mannvísindadeild, Stjórnmálafræðideild og Viðskiptafræðideild HÍ.

Fundarstjóri í dag er Anna Agnarsdóttir prófessor í sagnfræði. 

Frétt Háskóla Íslands um fundaröðina

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert