Tóku ekki afstöðu
Samþykkt var á Prestastefnu í dag, með 56 atkvæðum gegn 53, að vísa tveimur tillögum sem lágu fyrir fundinum um lagafrumvarp um breytingar á hjúskaparlögum, til biskups og kenningarnefndar kirkjunnar.
Fyrir Prestastefnu, sem nú fer fram í Vídalínskirkju í Garðabæ, lá tillaga frá 91 presti og guðfræðingi um að lýsa stuðningi við lagafrumvarp dómsmálaráðherra um að ein hjúskaparlög gildi og þannig verði afnuminn sá munur, sem felst í mismunandi löggjöf vegna hjúskapar karls og konu annars vegar og staðfestingar samvistar tveggja einstaklinga af sama kyni hins vegar.
Sagði í tillögunni að íslenska þjóðkirkjan væri í stakk búin til að stíga þetta skref með ríkisvaldinu í ljósi ítarlegrar gruðfræðilegrar umfjöllunar síðustu ára á kirkjulegum vettvangi um kirkju, kynhneigð og hjónaband.
Geir Waage, sókarprestur í Reykholti, lagði á móti fram tillögu á Prestastefnu um að beina því til Alþingis að létta af prestum Þjóðkirkjunnar umboði til þess að vera vígslumenn í skilningi hjúskaparlaga. Sagði Geir við mbl.is, að það myndi þýða, að prestar færu ekki lengur með hið lögformlega vígsluhlutverk. Fólk þyrfti þá formlega að gifta sig, t.d. hjá fógeta, en gæti eftir sem áður notið blessunar í kirkju óskaði það þess.
Umræða um tillögurnar hófust á Prestastefnu í morgun og voru skoðanir skiptar. Þriðja tillagan kom þá fram frá sr. Gunnlaugi Garðarsyni um að vísa hinum tveimur tillögunum til biskups og kenninganefndar kirkjunnar sem muni síðan skila áliti um málið.
Í kenningarnefnd sitja biskupar og fulltrúar presta og guðfræðideildar Háskóla Íslands. Nefndin hefur áður fjallað um staðfesta samvist og afstöðu kirkjunnar gagnvart henni.
Bloggað um fréttina
-
Kristin stjórnmálasamtök Tímabundinn varnarsigur kristinnar kenningar í Þjóðkirkjunni? -
Jóhanna Magnúsdóttir Hvernig væri að "þjóð" kirkjan færi að lifa í núinu? -
-
Böðvar Ingi Guðbjartsson Ánægður með prestastefnuna. -
Óli Jón Dauðahryglan -
Axel Jóhann Axelsson Er þjóðkirkjan að klofna vegna samkynhneigðar? -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Hættið ríkisstyrkjum strax -
Ómar Ragnarsson Jafnrétti og traust. -
Heimir L Fjeldsted Æxlunarfærin gera gæfumuninn -
Guðlaugur Hermannsson Ég legg til að samkynhneigðir stofni eigið trúfélag. -
Adda Guðrún Sigurjónsdóttir Mismunun innan kirkjunnar er varla Guði þóknanleg....
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 27. apríl 2010, Innlent Biskup býst við einum hjúskaparlögum
- Mánudagur, 2. maí 2011, Innlent Kirkja á krossgötum
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent Kirkjuráð biðst afsökunar á brotum presta
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Hrunið bitnaði á kirkjunni
- Fimmtudagur, 29. apríl 2010, Innlent Vilja skýrslu um kirkjuna og hrunið
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































