Höfuðkúpubrotnaði á Akureyri

Í Gilinu á Akureyri.
Í Gilinu á Akureyri. akureyri.net

Maður féll niður stiga á skemmtistað í miðbæ Akureyrar á níunda tímanum gærkvöldi og höfuðkúpubrotnaði. Gripið var strax til viðeigandi ráðstafana og maðurinn fluttur suður til Reykjavíkur með sjúkraflugvél.

Þá gómaði lögreglan fimm unga pilta í Innbænum á Akureyri í nótt sem gerðu sér til skemmtunar að brjóta bjórflöskur á götum úti og kasta í bíla. Piltunum var gert að sópa glerbrotin upp. Hvað varðar bílana sem þeir skemmdu, meðal annars með rúðubrotum, liggja allar upplýsingar um piltana fyrir og geta bíleigendur því gert til þeirra kröfur um að bæta skaðann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert