Vilja að sala á Sparisjóði Hafnarfjarðar verði rannsökuð

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í vikunni, að leggja til að bæjarstjórn Hafnarfjarðar óski eftir því við embætti sérstaks saksóknara að tekin verði til skoðunar og rannsóknar sala á eignarhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar, yfirtaka Byr á eigum SPH og meðferð eignahluta.

Vill bæjarráðið að einnig verði rannsökuð meðferð varasjóðs vegna lífeyrisskuldbindinga og annarra þeirra þátta sem tengjast sérstaklega hagsmunum Hafnarfjarðarbæjar, íbúum Hafnarfjarðar og fyrrum starfsmanna SPH.  Rannsókn þessari verði hraðað sem nokkur kostur er.

Bæjarráð lagði einnig til að bæjarstjórn hvetji Alþingi til að taka til skoðunar upphaf  og tilurð laga er varða breytt starfsumhverfi sparisjóða og hverjir hafi hagnast á þeim breytingum. Ásamt því að bæjarstjórn óski eftir upplýsingum um samskipti Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðar við Byr sparisjóð varðandi lífeyrisskuldbindingar.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka