Árás stjórnvalda á félagslega kerfið

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði í velferðarkerfinu.
Öryrkjabandalag Íslands mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði í velferðarkerfinu. mbl.is/Ómar

Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir því harðlega að íslensk stjórnvöld hyggist boða frekari niðurskurð í velferðarkerfinu. Stjórnvöld ráðist með þessu að félagslega kerfinu með offorsi.

Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn ÖBÍ. Hún er eftirfarandi:

„Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega að enn á ný skuli þessi ríkisstjórn sem kennir sig við „velferð” ráðast að félagslega kerfinu með því offorsi sem félags- og tryggingamálaráðherra boðaði síðastliðinn föstudag 14. maí. Kominn er tími til að leggja af verðmætamat frjálshyggjunnar.

Allt frá janúar 2009 hafa lífeyrisþegar orðið að bera hlutfallslega mestar byrðar vegna bankahrunsins, þar sem óprúttnir fjárglæframenn mökuðu krókinn á kostnað skattborgaranna. Allt síðastliðið ár dundu skerðingar á örorku- og ellilífeyrisþegum í formi skerðinga á lífeyri eða auknum lyfjakostnaði og hækkun komugjalda.

Það er skýlaus krafa Öryrkjabandalags Íslands að ríkisstjórnin láti af þeirri aðför sem hún hefur stundað gegn lífeyrisþegum og láglaunafólki, en fari að forgangsraða að nýju með félagsleg gildi í fyrirrúmi.“



Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert