Spá Heru góðu gengi

Páll Óskar segir pottþétt að Hera verði í efsta sæti á einhverjum tímapunkti í kvöld. Hann segir Heru hafa sýnt mikla fagmennsku í aðdraganda keppninnar og er þess fullviss að henni muni ganga vel. Undir þessi orð taka þær Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva Ármannsdóttir.

Þrenningin var stödd á NASA við Austurvöll í dag við æfingar en þar er ráðgert að halda heljarinnar Eurovision partý í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert