Gaf sjúkrahúsinu 45 milljónir

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Skapti

Sjúkrahúsið á Akureyri greinir frá því að einstaklingur, sem vilji ekki láta nafn síns getið, hafi fært Gjafasjóði sjúkrahússins 45 milljónir króna, sem verði varið til að kaupa á tækjum og búnaði.  

„Þessi gjöf er ein af stærstu gjöfum sem Sjúkrahúsið hefur fengið frá upphafi. Gefanda eru færðar innilegar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf,“ segir á vef sjúkrahússins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert