Óttast landflótta
Lilja Mósesdóttir Mbl.is
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, óttast landflótta ef laun ríkisstarfsmanna verða skert of mikið. Hún segir að tillagan um launafrystingu geti aðeins gengið, ef hún nái jafnt til ríkis- og einkageirans.
„Mér finnst ansi langt gengið að refsa ríkisstarfsmönnum fyrir kreppu sem rekja má til einkageirans. Ég vil skoða launaþróun mjög nákvæmlega á einkamarkaðinum áður en ég samþykki launafrystingu - hvað þá launalækkun - í ríkisgeiranum,“ segir Lilja. Hún bætir við að fara þurfi varlega í niðurskurð hjá hinu opinbera á krepputímum. Annars sé hætta á því að niðurskurðarkreppa taki við af fjármálakreppunni.
Lilja óttast að verið sé að fara svipaða leið og í upphafi tíunda áratugarins, þegar ríkisstjórnin samþykkti bráðabirgðalög til að afnema leiðréttingu launa ríkisstarfsmanna í samræmi við einkageirann. „Þetta varð til þess að ríkisstarfsmenn sem höfðu fjárfest í menntun voru á mun lægri launum en fólk með millimenntun í einkageiranum. Margt af þessu fólki flúði land. Það treysti sér ekki til að standa undir námslánum og fasteignaskuldum á þeim launum sem voru þá í boði.“
„Ég óttast landflótta og fátækt meðal láglauna ríkisstarfsmanna. Við megum ekki skerða laun ríkisstarfsmanna langt umfram það sem er að gerast í einkageiranum,“ segir þingmaðurinn og bætir við að ríkisstarfsmenn séu ekki minna skuldsettir en aðrir.
Lilja bendir á að lánin hækki í samræmi við verðbólgu. „Með því að frysta laun búum við til ákveðið misgengi ofan á það sem að nú þegar hefur orðið, á meðan við tökum ekki verðtrygginguna úr sambandi eða setjum þak á hana,“ segir Lilja. „Ég óttast að launafrysting á sama tíma og við erum með verðtryggð fasteignalán mun auka misgengi á milli launa og lána.“
Þingmaðurinn segist geta sætt sig við almenna launafrystingu ef hún nái ekki bara til ríkisgeirans. „Það yrði þá gert með því að lofa launþegum að jafnvel afnema vertrygginguna í áföngum,“ segir Lilja að lokum.
Bloggað um fréttina
-
Skúli Guðbjarnarson Tvær fjölskyldur á dag úr landi -
Sigurður Þórðarson Reynum að koma í veg fyrir landflótta -
Einar Guðjónsson Gjöld líka fryst ? -
Karl V. Matthíasson Atvinnuleysi = landflótti. -
Haraldur Haraldsson Óttast landflótta/næsta víst að það verði í stórum stíl !!!!
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Þriðjudagur, 10. nóvember 2009, Innlent Viðurkenna lífskjararýrnun
- Fimmtudagur, 9. desember 2010, Innlent Hafnar niðurskurði í frumvarpi
- Föstudagur, 10. desember 2010, Innlent Hvetur Lilju til að samþykkja fjárlögin
- Þriðjudagur, 4. maí 2010, Innlent Telur rétt að lækka launin
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































