Einn með allar tölur réttar

Einn var með allar lottótölurnar réttar í kvöld og hlýtur hann tæplega 24 milljónir í vinning. Fyrsti vinningurinn var að þessu sinni fjórfaldur. Sá heppni keypti miðann sinn í Brautarnesti við Hringbraut í Keflavík á þjóðhátíðardaginn.

Annar lottóspilari hafði líka heppnina með sér en hann var með allar Jókertölurnar réttar - í réttri röð og hlýtur 2 milljónir í vinning.  

Þar að auki voru 7 vinningshafar með 4 réttar tölur - í réttri röð í Jóker og hljóta þeir 100 þúsund krónur hver í vinning.

Tölur kvöldsins voru 5 6 17 38 39. Bónustalan var 15.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert