Borgarstjóri veiddi lax

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, var fljótur að ná sínum fyrsta …
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, var fljótur að ná sínum fyrsta laxi. mbl.is/Einar Falur

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, veiddi fyrstu laxa sumarsins í Elliðaánum í morgun. Samkvæmt hefðinni opnaði borgarstjóri árnar er hann renndi maðki í Sjávarfossin klukkan sjö.

Fjölmiðlar voru á staðnum og einnig dreif að áhorfendur er vildu fylgjast með tilþrifum leikarans. Jón naut  aðstoðar Ásgeirs Heiðars, margreynds leiðsögumanns, og ekki liðu nema fjórar mínútur þar til fyrsti laxinn hafði hremmt maðkinn. Skömmu síðar var sex punda hængur kominn á land, maríulax borgarstjórans.

Borgarstjórinn vildi strax reyna við fleiri laxa og í næsta hyl neðan við Sjávarfoss setti hann fljótlega í annan á maðkinn. Sá náði að troða sér á milli grjóta í flúðini, festa línuna og slapp. Þá héldu Jón og Ásgeir Heiðar niður á Breiðuna, þar sem Elliðaárnar mæta hafi, og rétt fyrr klukkan átta í morgun landaði borgarstjóri öðrum laxi þar, nýrunnum smálaxi.

Jón Gnarr sagði blaðamanna þá að hann hugðist taka fram flugustöngina og reyna að ná fyrsta flugulaxi sínum, en hann veiðir til hádegis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert