Meirihluti ofbeldismála heimilisofbeldi
Meirihluti ofbeldis- eða ágreiningsmála milli skyldra og tengdra einstaklinga eru skráð á höfuðborgarsvæðinu, eða 76% ofbeldismála og 81% ágreiningsmála. Flest tilvikin áttu sér stað á heimili eða einkalóð, eða í 92% tilvika. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um heimilisofbeldi.
Fram kemur á vef lögreglunnar að tilkynningar um heimilisofbeldi dreifist nokkuð jafnt yfir árið. Hins vegar séu flest tilvik tilkynnt um helgar eða 47%. Athygli veki að þegar tími tilkynningar sé skoðaður eftir vikudegi þá hafi heimilisofbeldi oftar verið tilkynnt á kvöldin á virkum dögum en eftir miðnætti og fram eftir nóttu um helgar.
Gerendur voru 787 og komu þeir við sögu í 950 tilvikum. Í 76% tilvika voru karlar gerendur og í 24% tilvika konur. Meðalaldur gerenda var 35 ár.
Konur voru líklegri en karlar til að vera ítrekað þolendur og að sama skapi voru karlar líklegri en konur til að vera ítrekað gerendur. 7% karlanna og 15% kvennanna komu oftar en einu sinni fyrir í skýrslum lögreglu sem þolendur. Þegar önnur brot gerenda voru skoðuð kom í ljós að 715 þeirra höfðu verið kærðir fyrir önnur brot en heimilisofbeldi á árunum 2000 til 2007, flestir fyrir umferðarlagabrot.
Forsaga var þekkt í um helmingi tilvika. Þegar þau tilvik voru skoðuð kom í ljós að í um 30% tilvika var heimilisofbeldi rakið til skilnaðar eða sambandsslita. Áfengis- eða vímuefnaneysla var hluti af forsögu rúmlega 18% ofbeldismála og 12% ágreiningsmála.
Rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem hófst árið 2000 er ríkislögreglustjóri ákvað að gera rannsókn á ofbeldi, eins og það birtist í gögnum lögreglu og gögnum Landspítala háskólasjúkrahúss. Í framhaldinu var gerð áætlun um að skoða mismunandi tegundir ofbeldis og byrjað á ofbeldi gegn lögreglumönnum og birtust niðurstöður þeirrar rannsóknar í skýrslu árið 2007.
Í rannsóknarskýrslunni um heimilisofbeldi var unnið með samtals 993 mál sem töldust annaðhvort ofbeldi eða ágreiningur milli skyldra og tengdra og tilkynnt voru til lögreglu á árunum 2006-2007. Rannsóknina gerðu þær Guðbjörg S. Bergsdóttir, félagsfræðingur hjá embætti ríkislögreglustjóra og Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Mikilvægt að greina umfang vandamálanna. -
Ómar Ragnarsson Og meiri hluti unglingavandamála foreldravandamál ? -
Heimir L Fjeldsted Kærur karla í miklum minnihluta
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. febrúar 2011, Innlent 32 manndráp á 20 árum
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Skráningu ofbeldismála ábótavant
- Fimmtudagur, 17. febrúar 2011, Innlent Fá eða engin úrræði til boða
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Blað brotið með stofnun Stígamóta
- Fimmtudagur, 26. maí 2011, Innlent Kalla eftir forvörnum í barnaverndarmálum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































