Flýta flugi til Akureyrar á morgun
Flugáætlun Flugfélags Íslands milli Reykjavíkur og Akureyrar verður flýtt í fyrramálið svo hægt sé að fljúga tvær flugferðir áður en átta stunda langt verkfall slökkviliðsmanna skellur á klukkan 8.
Að sögn Ara Fossdal, stöðvarstjóra Flugfélags Íslands á Akureyri, er áætlað að tvær flugvélar fari frá Reykjavík til Akureyrar klukkan 6:45. Áformað er að flugvélarnar fari til baka frá Akureyri laust fyrir klukkan 8.
Þá mun flugvél leggja af stað frá Reykjavík klukkan 15:15 og áætlað er að hún lendi á Akureyri laust eftir klukkan 16 en þá lýkur verkfallinu. Áformað er að flugvélin haldi frá Akureyri klukkan 16:16.
Engin slökkviþjónusta verður á Akureyrarflugvelli meðan á verkfalli slökkviliðsmanna stendur en slökkvliðsmenn, sem sinna þar þjónustu, eru í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Hefur landssambandið boðað nokkur dags verkföll, það fyrsta á morgun, fram í september þegar allsherjarverkfall hefst hafi ekki náðst kjarasamningar.
Flugvöllurinn er hins vegar ekki lokaður og mun Norlandair sinna áætlunarflugi til Þórshafnar, Grímseyjar og Vopnafjarðar.
Akureyrarbær segir, að komi til verkfalls slökkviliðsmanna muni öllum neyðartilvikum verða sinnt af hálfu slökkviliðsins, hvort sem um er að ræða bruna, sjúkraflutninga á landi eða sjúkraflug. Starfsmenn í eldvarnareftirliti og starfsmenn slökkviliðsins á Akureyrarflugvelli leggi niður störf á morgun frá klukkan 8 til 16.Bloggað um fréttina
-
Jóhann Elíasson ÞAÐ VÆRI NÆR AÐ SEMJA BARA VIÐ SLÖKKVILIÐSMENN...............
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Húsavíkurfluginu frestað
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Innlent Verkfall hafið og flug raskast
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Stöðvuðu Húsavíkurflugið
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Slökkviliðsmenn í verkfall
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Hleypa farþegum ekki út
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































