4,3 milljarðar ofgreiddir í tryggingabætur
mbl.is/Árni Torfason
Heildarniðurstöður endurreiknings á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins liggja nú fyrir. Alls fengu 11 þúsund bótaþegar of mikið greitt, samtals 4,3 milljarðar króna, og 5 þúsund bótaþegar fengu of lítið greitt, samtals 1,7 milljarðar. Heildarfjárhæð endurreiknaðs lífeyris og tengdra bóta er um 47 milljarðar króna.
Greiðslur til lífeyrisþega á árinu 2009 hafa verið bornar saman við tekjuáætlanir og skattframtal fyrir sama ár. Niðurstaðan segir til um hvort lífeyrisþegi hafi fengið greitt út í samræmi við þann rétt sem hann hafði á árinu 2009.
Að sögn Tryggingastofnunar er fjöldi lífeyrisþega rúmlega 47 þúsund manns. Ellilífeyrisþegar eru um 30 þúsund og örorkulífeyrisþegar um 17 þúsund. 66% lífeyrisþega eða 31 þúsund manns fengu greiðslur innan eðlilegra frávika. 24% lífeyrisþega eða 11 þúsund manns fengu ofgreiðslur umfram eðlileg frávik. 10% lífeyrisþega eða 5 þúsund manns eiga inneignir umfram eðlileg frávik.
Tryggingastofnun segir, að eins og undanfarin ár sé munurinn lítill á milli atvinnu- og lífeyrissjóðstekna í tekjuáætlunum 2009 og í skattframtali. Hins vegar hafi vextir, verðbætur og arður verið verulega vanáætluð í tekjuáætlunum lífeyrisþega, eða um 75%. Það sé megin skýringin á ofgreiðslum lífeyris og tengdra bóta vegna ársins 2009 en um 22 þúsund lífeyrisþegar, sem fengu vexti og verðbætur greindu ekki frá þeim í tekjuáætlunum.
Af 4,3 milljarða króna ofgreiðslum vegna ársins 2009 eru um 3,3 milljarðar vegna fjármagnstekna, en um 1 milljarður vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna (0,4 atvinnutekjur og 0,6 lífeyrissjóðstekjur).
Næstu daga fá lífeyrisþegar sent bréf með niðurstöðum uppgjörsins. Í því bréfi eru jafnframt upplýsingar frá ríkisskattstjóra um breytingar sem hafa orðið á tekjum innan ársins 2009.
Niðurstöður uppgjörs verða aðgengilegar fyrir lífeyrisþega á þjónustuvef Tryggingastofnunar, tryggur.is, eftir kl. 15 á morgun.
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 25. júlí 2011, Innlent Greiðslur til 70% lífeyrisþega í lagi
- Þriðjudagur, 28. júlí 2009, Innlent Ofgreiddur lífeyrir 3 milljarðar
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Innlent Á fjórða hundrað andmælabréf
- Föstudagur, 30. júlí 2010, Innlent Skerðing lífeyris vegna verðbóta er keðjuverkandi
- Föstudagur, 8. október 2010, Innlent Allar greiðslur frá Tryggingastofnun tekjutengdar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































