Anddyri réttarins rýmt

Lögreglan í héraðsdómi í morgun
Lögreglan í héraðsdómi í morgun mbl.is/Jakob Fannar

Lögreglan rýmdi anddyri héraðsdóms Reykjavíkur rétt í þessu en þar voru mótmælendur komnir saman sem kröfðust inngöngu í dómssal þar sem fyrirtaka máls níumenningana stendur nú yfir. Barið var á glugga, hurðir og hrópað í takt við sláttinn. Lætin þóttu trufla réttarhöldin.

Lögreglunni gekk greiðlega að rýma húsið þó mótmælendur hafi veitt þeim töluverðar mótbárur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert