Stofnun atvinnuvegaráðuneytis frestað

Ólöf Nordal.
Ólöf Nordal.

Allsherjarnefnd Alþingis samþykkti í gær að fresta því að stofna nýtt atvinnuvegaráðuneyti með sameiningu iðnaðarráðuneytis, samgönguráðuneytis og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis.

Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir við Ríkisútvarpið, að ástæðan sé ágreiningur í ríkisstjórn og andstaða VG við málið.

Ríkisútvarpið hefur eftir Ólöfu, að ágreiningurinn felist í því að Vinstri grænir vilji ekki afgreiða frumvarp um sameininguna í núverandi búningi og þetta  tengist umræðunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert