Vill rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segist í viðtali við Fréttablaðið vonast til þess að fram fari opinber rannsókn á vinnulagi sérstaks saksóknara.
Sigurður segir, að gæsluvarðhaldsúrskurðir í maí yfir Hreiðari Má Sigurðssyni og fleiri fyrrum yfirmönnum Kaupþings hafi ekkert haft með hagsmuni rannsóknar saksóknara að gera.
„Embætti saksóknara hafði verið með ýmsar yfirlýsingar um að brátt færi að líða að þessu og hinu, ákærum og svo framvegis. Ég held að það hafi verið kominn töluverður þrýstingur á að eitthvað gerðist. Þá var gripið til þess ráðs að þjarma hraustlega að okkur Kaupþingsmönnum og sumir jafnvel hnepptir í varðhald. Mér er kunnugt um að fyrrverandi forstjóri bankans, Hreiðar Már Sigurðsson, var hnepptur í tólf daga einangrun en ekkert talað við hann fyrr en á síðasta degi varðhaldsins. Maður spyr: Er það eðlilegt? Þá mundu þeir auðvitað segja: Við þurftum að tala við ýmsa aðra. En mér er kunnugt um það hverja aðra var talað við og það er ekkert þar sem réttlætir tólf daga gæsluvarðhald. Ekkert," segir Sigurður.
Segir Sigurður að hann hafi, með því að neita lengi vel að mæta í
yfirheyrslu á Íslandi, ekki ætlað að tefja rannsóknina heldur verið að
mótmæla óskiljanlegum yfirgangi og valdníðslu.
Sjálfur segist hann telja að hann hafi gefið fullnægjandi skýringar á öllu því, sem honum er gefið að sök. Þá segir hann það ofvaxið sínum skilningi, að Icesave-málið skuli ekki hafa verið fyrsta málið, sem rannsakað var sem sakamál eftir hrun.
Sigurður segist hafa reynt að skapa sér nýja tilveru eftir bankahrunið og það hafi gengið býsna vel áður en saksóknarinn ákvað að setja hann á lista alþjóðalögreglunnar. Sú ákvörðun hafi reynst mjög afdrifarík fyrir sig og sína fjölskyldu.
Þegar Sigurður er í viðtalinu spurður hvort hann telji sig skulda íslenskum almenningi afsökunarbeiði segist hann telja að það sé annarra að biðjast afsökunar á skellinum sem lífskjör almennings hlutu í hruninu.
„Það sem ég er að reyna að segja er að ég ber mína ábyrgð en ekki gagnvart þjóðinni og ég tel að það sé þeirra sem til hennar sóttu umboð að standa henni reikningsskil gjörða sinna. Í þeim efnum er ég auðvitað að tala um stjórnmálamenn og embættismenn í stjórnsýslunni," segir Sigurður.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Það er margt sem réttlætir nokkuð yfir Sigurði! -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Saklausir þola rannsókn! -
Kristinn Karl Brynjarsson Er nóg að segja "afsakið" án þess að iðrast? -
Haraldur Bjarnason Eins og í boltanum -
Jón Ingi Cæsarsson Siðblinda er erfið. -
Jón Baldur L'Orange Fjölmiðlar fjárglæframanna ata embættismenn auri -
Heimir L Fjeldsted Spilling í boði ríkisstjórnar Íslands -
Kolbrún Hilmars Karlanginn -
Gísli Foster Hjartarson Getum við afskrifað hann? -
Axel Jóhann Hallgrímsson Lophius piscatorius -
Ástþór Magnússon Wium Fréttablaðið gerist fjölmiðlahóra glæpamanna -
Marinó G. Njálsson Já, einmitt, FME að kenna að Sigga var ekki bannað ... -
Haraldur Haraldsson Vill rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara/það eitt er rétt að ... -
Inga Sæland Ástvaldsdóttir Kann ekki að skammast sín ! -
Kristbjörn Árnason Því sleikja blaðamenn botninn á Sigurði Einarssyni? -
-
Sigurður Sigurðsson Siðblindur og hrokafullur -
Sigurður Jónsson Hann klikkar ekki hrokinn hjá Sigurði Kaupþingsmanni. -
Sigurbjörg Kristmundsdóttir hvað er í gangi. -
Gunnar Heiðarsson Siðleysi, frekja og sjálfsdýrkun!! -
Ólafur Ragnarsson "andsk..... hroka"
Innlent »
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Yfirheyrsla í fyrramálið
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Launakröfur Kaupþingsstjóra fyrir dóm
- Laugardagur, 22. maí 2010, Innlent Enn beðið eftir Sigurði
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Sigurður Einarsson kominn til landsins
- Þriðjudagur, 11. maí 2010, Innlent Interpol lýsir eftir Sigurði
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina




































