Fimm framkvæmdastjórastöður lagðar niður
Seltjarnarnes. www.mats.is
Fimm stöður framkvæmdastjóra mismundi sviða Seltjarnarnesbæjar verða lagðar niður í sparnaðar- og hagræðingarskyni. Þá verður starfsemi sveitarfélagsins skipt í a.m.k. sex verkefnasvið í nýju stjórnskipulagi sem fyrsta áfanga í að taka upp flatt stjórnskipulag og verða þær stöður auglýstar.
Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi í vikunni tillögu ráðgjafafyrirtækisins Capacent um nýtt skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins. Fram kemur í tilkynningu, að meirihluti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn telji rétt, að við þær breyttu og erfiðu efnahagsaðstæður sem sveitarfélög á Íslandi búi nú við, sé nauðsynlegt að leita allra leiða til þess að draga úr kostnaði við rekstur bæjarfélagsins.
Unnið hafi verið markvisst að því undanfarna mánuði, að draga úr kostnaði á ýmsum rekstrarsviðum til að mæta minnkandi tekjum, en standa þess í stað vörð um gunnrekstur eins og t.d. skóla-, umhverfis- og öldrunarmál.
Nýtt stjórnskipulag, sem tekur formlega gildi 1. október nk., miði að því að færa uppbyggingu og virkni stjórnskipulags sveitarfélagsins nær fyrri uppbyggingu þess og því sem almennt gildi hjá sveitarfélögum af sambærilegri stærð utan höfuðborgarsvæðisins. Sú nálgun sé mun heppilegri viðmiðun en við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem séu bæði stærri en Seltjarnarnesbær og eigi auk þess verulega stækkunarmöguleika öfugt við Seltjarnarnesbæ. Þar búi nú hátt í 5000 manns.
Segir meirihlutinn í bæjarstjórn Seltjarnarnes, að tillagan, sem samþykkt var að stjórnkerfi Seltjarnarnesbæjar, miði að því að hafa skipulagið eins einfalt og kostur er, þ.e. að allar boðleiðir séu eins stuttar og frekast sé unnt án þess að einstökum starfsmönnum sé ætlað um of.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. febrúar 2011, Innlent Skipulagsbreytingar hjá Ísafjarðarbæ
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent Rekstur Vesturbyggðar þungur næstu árin
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Hafna kröfum Ólafs
- Þriðjudagur, 16. mars 2010, Innlent Endurreisi varnargarð
- Fimmtudagur, 17. júní 2010, Innlent Ásgerður áfram á Nesinu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































