Heimili kvikmyndanna

Gamli Regnboginn við Hverfisgötu hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga en í dag opnaði Bíó Paradís - heimili kvikmyndanna með formlegum hætti. Þar verða sýndar nýjar áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum.

Þar verða einnig haldnar kvikmyndahátíðir og fjölbreyttir viðburðir sem tengjast kvikmyndum. 

Þá er unnið að því að koma á koma á reglulegum skólasýningum í húsinu þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun á þessari mikilvægu listgrein.

Í Bíó Paradís er einnig að finna veitingahús og verslun með mynddiska og annan kvikmyndatengdan varning.

Heimasíða Bíó Paradís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert