Ómar skemmtir sér og gestum

Ómar byrjaði skemmtun sína af krafti.
Ómar byrjaði skemmtun sína af krafti. mbl.is/Eggert

Salurinn í Kópavogi er troðfullur á afmælisskemmtun Ómars Ragnarssonar og stemmningin er góð. Ómar sýndi alkunna takta þegar hann söng fyrsta lagið.

Ómar er sjötugur í dag og fagnar skemmtikrafturinn því með tónleikum og almennri skemmtun og um leið fagnar hann þvi að fimmtíu ár eru liðin frá því að hann byrjaði að koma fram. 

Á skemmtun Ómars koma fram ýmsir vinir hans, meðal annars Ragnar Bjarnason, Þuríður Sigurðardóttir og félagar úr Sumargleðinni.

Ómar skemmtir einnig í Salnum annað kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert