Þungbær skylda
„Ég vil minna þingmenn á þá þungbæru skyldu, sem á okkur hvílir," sagði Atli Gíslason, þingmaður VG, þegar hann mælti fyrir þingsályktunartillögu um málshöfðun á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum. „Þetta er dapurlegasta og erfiðasta verk sem ég farið í," sagði Atli.
„Við höfum tekið þetta sem miklu alvörumáli. En samkvæmt stjórnarskránni getur Alþingi kært ráðherra fyrir embættisverk," sagði Atli. „Stjórnarskráin felur þannig Alþingi að taka afstöðu til þess hvort kalla eigi ráðherra til ábyrgðar fyrir embættisrekstur þeirra á grundvelli laga um ráðherraábyrgð hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þetta eru lögbundin skyldustörf okkar."
Hann sagði, að eftir ýtarlega umfjöllun þingmannanefndar, sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hefði það orðið niðurstaðan að leggja til grundvallar gildandi lög um ráðherraábyrgð og landsdóm en leggja ekki til að lögunum yrði breytt.
Meirihluti þingmannanefndarinnar stendur að þingsályktunartillögu um málshöfðun á hendur þeirra Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gíslasdóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, Árna M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðssyni, fyrrverandi viðskiptaráðherra.
Atli lýsti störfum nefndarinnar og sagði meðal annars, að fimm sérfræðingar hefðu verið kallaðir til, samið drög að þingsályktunartillögunni og síðan yfirfarið þau. Sagði hann að fjórir af fimm sérfræðingum hefðu á endanum talið það sem komið hefði fram í málinu væri nægilegt og líklegt til sakfellis og uppfyllti réttarfarskröfur en sá fimmti hefði verið ósammála. Sérfræðingarnir hefðu hins vegar lagt áherslu á að þeir hefðu veitt ráðgjöf en þingmannanefndin yrði að taka ákvörðun.
Fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögunni, að sérfræðingar, sem störfuðu með nefndinni, voru Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor, Jónatan Þórmundsson, prófessor, Ragnhildur Helgadóttir, prófessor, Róbert R. Spanó, prófessor og Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari.
Bloggað um fréttina
-
S i g u r ð u r Sigurðarson Öll skjöl upp á borðið, Atli -
Heimir L Fjeldsted Hræsni -
Ásdís Sigurðardóttir Ég er orðin svo leið á stjórnmálum að ég er ... -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Nýtt landráðaframboð á döfinni -
Axel Pétur Axelsson Höfuðpaurarnir sleppa -
Ólafur Ingi Hrólfsson Gasalega þungbært - alveg gasalega - -
Guðjón Sigþór Jensson Eðlileg lausn -
Sigurður Haraldsson Alþingi stórasta og spilltasta leikhús okkar ísledinga! -
Halldór Halldórsson Þingníðingar! -
Haraldur Hansson "Þið eruð ekki þingið" -
Ingibjörg Friðriksdóttir Nú reynir á -
Sigurjón Benediktsson Æ,æ alveg voða þungbært... -
Ómar Geirsson Atli hefur ekki hulið andlit sitt. -
Sigurður Jónsson Þingmenn eiga að taka ákvörðun en neitað um gögn. -
-
Einar Þór Strand Stundum þarf að gera rétt. -
Jón Baldur L'Orange Litla gula hænan -
Páll Vilhjálmsson Ríkisstjórnarsamstarf í hættu vegna ráðherraákæru
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Þörf á að endurnýja umboð þingmanna?
- Laugardagur, 25. september 2010, Innlent Ekki tillaga um breytingar
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Umræða um ákærur að hefjast
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Umræðu frestað til mánudags
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Ósammála í grundvallaratriðum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































