Harður árekstur í Ölfusi

Síðdegis í gær varð harður árekstur á Suðurlandsvegi á móts við bæinn Velli í Ölfusi.  Bifreið var ekið aftan á kyrrstæða bifreið sem hafði stöðvað á veginum vegna hrossa sem var verið að reka yfir veginn. 

Ökumenn og farþegar bifreiðanna hlutu minni háttar áverka.  Bæði ökutækin voru óökufær eftir áreksturinn, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert